Hjálpræðisherinn í Reykjanesbæ er staðsettur á Ásbrú og var stofnaður árið 2008. Haustið 2020 var starfsemi Hjálpræðishersins í Reykjanesbæ færð undir Hjálpræðisherinn í Reykjavík og tilheyrir því Reykjavíkurflokki.
Hjálpræðisherinn í Reykjanesbæ er með
- Glæsileg verslun sem selt er second hand, HERTEX.
- Virkninámskeið
- Matur í hádeginu alla virka daga
- Mataraðstoð gegn matarsóun unnið í samvinnu með Samkaup.
Virkninámskeiðin eru:
- Saumur, redesign. Endurhönnun úr þeim textíl sem ekki er hægt að selja í verslun okkar. Allt gert til þess að minnka útflutning og kolefnisspor
- Hekl og prjón
- Smíðaverkefni, Notum endurnýttan við sem annars færi á haugana. Smíðað eru td blómaker, bekkir og hillur
- Mataraðstoðin, virkni í eldhúsi og afhendingu sem og móttöku matvæla og aðra nauðsynjavara sem til falla hjá Samkaup.
- Frískápur er í uppsetningu.
- Verslunin, virkni í flokkun á lager og í verslun ( framsetning og afgreiðsla )
- Uppkveikirúllur ( Tennruller ) fyrirmynd frá Jobben.
- Enskukennsla 2-3 í viku.
Virkninámskeiðin eru unnin í samvinnu með Reykjanesbæ sem og öðrum sveitarfélögum á Suðurnesjunum, Vinnumálastofun og Heilbrigðisstofnunum.
Hjálpræðisherinn í Reykjanesbæ er á Facebook.
Hertex í Reykjanesbæ er á Facebook
Hægt er að bóka viðtalstíma hjá foringja hér: