Dagsetur í Reykjavík
Dagsetur Hjálpræðishersins opnaði í Reykjavík í nóvember 2007 og er opið alla daga kl. 12-17.
Hér gefst fólki tækifæri að fá sér að borða, fara í sturtu, hvílast, fá fótsnyrtingu, þvo fötin sín, ræða málin sín, og fleira og fleira.
Dagsetrið er staðsett á Eyjarslóð 7 á Granda út á Örfirisey - næsta hús við Seglagerðina Ægi - og þér er velkomið að líta inn hvenær sem er á opnunartíma.