Meny Innhold

Hertex nytjamarkaður

Hertex

Hertex er nafn nytjamarkaðskeðju Hjálpræðishersins á Íslandi.
Í dag eru starfandi nytjamarkaður á Akureyri, fatabúð og nytjamarkaður í Reykjavík og fatamarkaður á Ásbrú í Reykjanesbæ.
 

Hertex á Íslandi
Þessi uppákoma að selja notaðar vörur er ekki alveg ný hér á landi og er alls ekki einkaframtak Hjálpræðishersins.
Hjálpræðisherinn fyrir sitt leyti byrjaði fyrir þó nokkuð mörgum árum að halda flóamarkað meira og minna reglulega, bæði á Akureyri og í Reykjavík.
Í áratugi hafa því þessi starfsemi verið mikill fjárhagslegur styrkur fyrir starf Hjálpræðishersins, sem er að boða fagnaðarerindið um Jesú í orði og verki.

Þér er velkomið að hafa samband í síma 552 0788 eða 898 7018.



Fretex í Noregi
Hertex hefur sínar rætur frá Fretex í Noregi en Fretex er stærsta nytjamarkaðskeðja Noregs og er jafnframt mikilvægur þáttur í starfi Hjálpræðishersins þar í landi.

Fyrsta búðin opnaði í Osló árið 1905 undir nafninu Elevator. Frá þeim tíma hefur umhyggja fyrir náungann og að rétta einstaklingum hjálparhönd verið í brennidepli. Fataúthlutun og ódýr húsgögn hafa verið hluti af þessu. Mikilvægasta atriðið í þessu hefur samt sem áður verið að gefa einstaklingum vinnu og sjálfsvirðingu.
Í dag er Fretex mikilvægur samstarfsaðili NAV (áður Aetat, vinnumiðlunarstofa), sem m.a. vinnur að því að aðstoða og þjálfa einstaklinga fyrir vinnumarkaðinn.

Skoðaðu heimasíðu Fretex www.fretex.no.